Okkar árlegi jólaföndurdagur var í dag þar sem börnin fóru á milli deilda og bjuggu til jólaskraut. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu voru foreldrar ekki með þetta árið.
...Tekið af vef Akureyrarbæjar:
„Anna Jóna Guðmundsdóttir hefur verið ráðin skólastjóri Tröllaborga frá og með 1. nóvember 2021. Alls sóttu fjórir
um stöðuna. Anna Jóna hefur 18 ára reynslu af stjórnun í leikskólum, þar af 14 ár sem leikskólastjóri. Lengst var hú...
Yngstu börn leikskólans eru í Árholti og þar er unnið með könnunarleik. Könnunarleikur er afar vinsæll meðal yngstu barnanna sem byggist á rannsóknarþörf barnanna til að skynja og rannsaka umhverfi sitt þar sem notaður er allskonar skapandi og endurnýtanlegur efniviður.
...Börnin í Móum hafa verið að vinna með haustið sl. daga.
...Frá skólastjóra:
Deildin Hvammur er kominn í sóttkví til og með þriðjudags í næstu viku (19.okt). Þar að auki er Tröllahópur í Bergi líka kominn í sóttkví auk eins kennara úr Bergi sem er með Tröllahóp.
Hópurinn er samansettur af elstu börnunum í Hvammi og Be...
Í dag fóru börnin í Bergi í gönguferð í leit að hlutum sem byrja á málhljóðinu og stafnum B. Þau fundu til dæmis ber, brekku, bekk, borð, búð, bensínstöð. birkitré og fl. :)
...Nú vinnum við með dygðina vinsemd og því bjuggu börnin til saman listaverk sem voru hengd í hurðargluggana í Læk.
Börnin bjuggu til laufblöð með því að stimpla hendurnar sínar á blað í haustlitunum. :)
Í dag kom loksins fyrsti snjórinn börnunum til mikillar skemmtunar. :)
...Í dag var náttfatadagur í leikskólanum þar sem börn og kennarar mættu í náttfötum. Í vinastundinni var svo slegið upp náttfataballi. :)
...Laugardaginn 4. september sl. urðu Tröllaborgir 17 ára. Börn og starfsmenn héldu að sjálfsögðu upp á daginn þann 3. sep með hópsöng á Völlum þar sem allir fengu snakk og í nónhressingunni var boðið upp á skúffuköku.
...